Færsluflokkur: Bloggar

Kæri Steingrímur

Kæri Steingrímur,

Aðgerðaleysi ykkar í þessari ríkisstjórn í málum skuldara er það sem fyrst og fremst er að auka á vandamálin og leiðir ófarnað yfir allt samfélagið.

Við viljum nefnilega forðast það ástand að fólk gefist upp í löngum röðum og hætti að borga en til þess að forðast slíkt kerfishrun sem yrði algjört og allir tapa á, bankar, lífeyrissjóðir og sá hluti almennings sem ekkert skuldar, verðið þið að grípa til aðgerða sem duga.

Ef einhverjar aðrar leiðir en þær að grípa til þess örþrifaráðs að hætta að greiða af lánunum duga til þess að hrista þig og félagsmálaráðherrann (sem er hreint ótrúlegur í bulli sínu) niður úr fílabeinsturninum og niður á jörðinna þar sem við hin erum er ég viss um að margir myndu gjarnan vilja þrauka lengur.  En því miður virðist ekkert annað duga.  Þolinmæði okkar er búin að vera hreint ótrúleg en við erum við það að missa alla von um þið gerið nokkurn skapaðan hlut.  Þegar það gerist að vonin hverfur hættum við að sjá nokkurn tilgang í þessu ströggli, við gefumst upp, hættum að borga og látum okkur hverfa til annarra landa þannig að þið getið þá setið eftir sem kóngar yfir rústunum.

 Bestu kveðjur,
Ægir

 


mbl.is Háskalegt að borga ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Takk fyrir þetta ríkisstjórn!

Kærar þakkir elskuleg ríkisstjórn fyrir að hækka með þessari aðgerð einni skuldirnar mínar um hátt i 200 þúsundkall.  Þær voru nebblilega ekki nógu miklar fyrir!
mbl.is Álögur á eldsneyti og áfengi hækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Ægir Örn Sveinsson
Ægir Örn Sveinsson

Eldri færslur

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband