Kæri Steingrímur

Kæri Steingrímur,

Aðgerðaleysi ykkar í þessari ríkisstjórn í málum skuldara er það sem fyrst og fremst er að auka á vandamálin og leiðir ófarnað yfir allt samfélagið.

Við viljum nefnilega forðast það ástand að fólk gefist upp í löngum röðum og hætti að borga en til þess að forðast slíkt kerfishrun sem yrði algjört og allir tapa á, bankar, lífeyrissjóðir og sá hluti almennings sem ekkert skuldar, verðið þið að grípa til aðgerða sem duga.

Ef einhverjar aðrar leiðir en þær að grípa til þess örþrifaráðs að hætta að greiða af lánunum duga til þess að hrista þig og félagsmálaráðherrann (sem er hreint ótrúlegur í bulli sínu) niður úr fílabeinsturninum og niður á jörðinna þar sem við hin erum er ég viss um að margir myndu gjarnan vilja þrauka lengur.  En því miður virðist ekkert annað duga.  Þolinmæði okkar er búin að vera hreint ótrúleg en við erum við það að missa alla von um þið gerið nokkurn skapaðan hlut.  Þegar það gerist að vonin hverfur hættum við að sjá nokkurn tilgang í þessu ströggli, við gefumst upp, hættum að borga og látum okkur hverfa til annarra landa þannig að þið getið þá setið eftir sem kóngar yfir rústunum.

 Bestu kveðjur,
Ægir

 


mbl.is Háskalegt að borga ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Það er ekkert gefið að ALLIR myndu tapa við kerfishrun. Núverandi kerfi er þannig að auðvöld soga til sín veraldleg auðæfi. Við kerfishrun væri alveg möguleiki á að veraldleg auðæfi myndu hverfa til réttra eigenda. Þ.e. hús myndi færast í eigur þeirra sem búa í því en ekki til bankans sem hefur selt þetta sama hús 40x og á það samt ennþá.

Ég veit það til dæmis að ég myndi ekki tapa miklu við kerfishrun, engu sem mér þykir vænt um allavega. Mamma myndi sennilega tapa skuldunum sínum, ekki grætur hún þær og myndi líklegast fá húsið sitt í staðin.

Ég hvet alla til að hætta að borga af skuldunum sínum, ekki til að ýta undir aðgerðir stjórnvalda (eða auðvalda hvað það varðar) heldur til að ýta undir kerfishrun. Til að hætta að taka þátt í ósanngjörnu kerfi sem auðvöld hafa troðið upp á okkur

Rúnar Berg Baugsson (IP-tala skráð) 1.9.2009 kl. 18:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ægir Örn Sveinsson
Ægir Örn Sveinsson

Eldri færslur

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband